Privacy policy

Garn og Gjafir er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Garn og Gjafir kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og aðrir einstaklingar, séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.

Garn og Gjafir, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið garnoggjafir@gmail.com
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt skilgreiningu persónuverndarlaga. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
Um meðferð Garn og Gjafir á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga:
Garn og Gjafir safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu Garn og Gjafir.
Garn og Gjafir safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Garn og Gjafir geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu.
Garn og Gjafir nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.

Viðskipti einstaklinga:
Garn og Gjafir safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar Garn og Gjafir m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina, upplýsingum um þá vöru og/eða þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verð.
Gerist viðskiptavinur brotlegur kann að vera unnið með upplýsingar um brot á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins. Þá kunna brot að vera tilkynnt til lögreglu.

Póstlisti:
Garn og Gjafir] vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista fyrirtækisins. Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Garn og Gjafir í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu Garn og Gjafir. Með skráningu þessara valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að Garn og Gjafir megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum fyrirtækisins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management), til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.
Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista fyrirtækisins með því að ýta á þar til gerðan hlekk í markpóstum, senda póst á netfangið [Netfang fyrirtækis].

Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana
Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana: Komi einstaklingur fram fyrir hönd samstarfsaðila Garn og Gjafir, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann Garn og Gjafir að vinna með tengiliða upplýsingar hans, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann Garn og Gjafir að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er fyrirtækinu nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann fyrirtækinu að vera skylt að vinna með slíkar upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga.

Ábendingar og/eða athugasemdir frá viðskiptavinum:
Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða kvörtun mun Garn og Gjafir almennt vinna með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri. Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu.

Miðlun persónuupplýsinga:
Garn og Gjafir nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar í. Garn og Gjafir miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins eða á grundvelli lagaskyldu.
Garn og Gjafir áskilur sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki Garn og Gjafir í þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um.
Garn og Gjafir deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. Garn og Gjafir afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerður er við þá samningur þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Allir vinnsluaðilar Garn og Gjafir og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Garn og Gjafir tryggir þannig vernd persónuupplýsinga í samræmi við lög og reglur um persónuvernd eins og þau eru á hverjum tíma. Þar á meðal með mótun öryggisstefnu um meðferð og öryggi persónuupplýsinga og setningu öryggis- og verklagsreglna eins og krafist er í persónuverndarlögum.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Garn og Gjafir trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Garn og Gjafir leigir aldrei eða selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.

Öryggi gagna:
Garn og Gjafir leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta, að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
Öll samskipti við vefþjóna [Nafn Fyrirtækis] eru dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS).

Réttindi þín:
Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir að Garn og Gjafir veiti honum upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur einstaklingur farið fram á það við fyrirtækið að við sendum upplýsingar, sem hann hefur sjálfur látið okkur í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað.
Vilji einstaklingur ekki láta eyða upplýsingum sínum, t.d. vegna þess að hann þarf á þeim að halda til að verjast kröfu, en vill samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu fyrirtækisins getur hann óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.
Sé vinnsla á persónuupplýsingum einstaklings byggð á lögmætum hagsmunum fyrirtækisins á hann einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.
Framangreind réttindi einstaklingsins eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda fyrirtækið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur fyrirtækið hafnað beiðni hans vegna réttinda fyrirtækisins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji fyrirtækið þau réttindi vega þyngra. Réttindi þín til að mótmæla vinnslu í markaðssetningar tilgangi er þó skilyrðislaus.
Ef upp koma aðstæður þar sem að fyrirtækið getur ekki orðið við beiðni einstaklings mun fyrirtækið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.

Vafrakökur (e. cookies):
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Garn og Gjafir notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Garn og Gjafir vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Garn og Gjafir.
Garn og Gjafir notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga og notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en Garn og Gjafir áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefverslunina samþykkir neytandi að Garn og Gjafir safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Garn og Gjafir gætu takmarkast við slíkar breytingar.


Endurskoðun stefnu:
Persónuverndarstefna Garn og Gjafir er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar.
Garn og Gjafir áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara.
Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu, skal senda á netfangið garnoggjafir@gmail.com eða í síma 611-5866.
Þessi persónuverndarstefna var sett þann 26.apríl 2023.