Collection: Sugar - Nýtt vegan sumargarn í verslun

Sugar - 100 % sykurreyr - sjálfbært og umhverfisvænt

Innihaldslýsing:100% Sugar Cane / Sykurreyr
Prjónastærð: 4 mm
Prjónfesta: 24-26 L / 10 cm
Þyngd/lengd 50
gr = 125 m
Þyngdarflokkur: dk
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur

Lana Gatto Sugar: Sætasta silkið úr náttúrunni 
Vissir þú að sykurreyr er ein sjálfbærasta uppspretta náttúrulegs garns í heiminum?
Lana Gatto Sugar breytir aukaafurðum sykurreyrsvinnslu í dásamlega fínan og silkimjúkan þráð. Útkoman er einstök lúxusprjónaupplifun sem er bæði dásamleg viðkomu og góð fyrir jörðina. 

Vegangarn úr 100 % sykurreyr frá Lana Gatto. Sugar er einstaklega mjúkt og létt garn, fullkomið fyrir sumarprjónið. Garnið hefur örlítið glansandi yfirborð. Hið nýja silki.

Garnið er OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað, Lana Gatto garnið er framleitt á Ítalíu.